Ohh lífið er ljúft! Það er ekki að spurja að því.. Gengur allt
sinn vanagang og vinnan er æðisleg, svo gefandi og frábær.
Ég er byrjuð að telja niður dagana til Marmaris, Svanhvít og
Klara: hvernig hafiði það þarna úti í sólinni?? *öfund*
Mig er farið að langa að kíkja á fóbóæfingu með ÍA. Þori bara
ekki alveg. Vildi óska að Ölli hefði ekki slitið þessi bévítans
krossbönd, þá gætum við af og til farið að sparka í bolta og leika
okkur.
Ég fór á Ungfrú Ísland. Mikið á ég sætar vinkonur, það er ekki
eðlilegt! Girls, rock on. Og að mínu mati voru þið LANGTUM
fallegastar á sviðinu, og með langbesta stuðninginn
creditcredit!
En svo verður nú ekki minna stuð um helgina, ég og stelpurnar
ætlum að halda kokteilparty og þema verður auðvitað með í spilunum
og það verður á föstudeginum. Ég ætla að reyna að taka myndir!
Auðvitað.
Svo ætlum ég, Eydís og Rósa að fara í bláa lónið og út að borða
á laugardaginn!!
ég pantaði gott borð fyrir okkur á Ítalíu. Ég
hlakka til.
En brosið framan í heiminn, þá mun heimurinn brosa framan í
ykkur, og ósjálfrátt verður lífið ljúft á allan þann hátt sem þið
viljið!
Ég er allaveganna glöð, og þær ákvarðanir sem ég hef tekið eru
svo sannarlega að borga sig og það hefur kennt mér að það er alltaf
best að hlusta á sjálfan sig og sitt hjarta :*
Myndir frá London og fleiru eru væntanlegar, þegar ég hef lært
almennilega á eplið 
Gudda Budda kveður --> glöð enda þýðir ekkert annað.