|
|
23.01.2008 20:34:22 / gudruns
Hef verið að velta því fyrir mér að prufa að færa mig yfir á annað blogg. Ætla samt að gefa þesus örlítið meiri séns. Ég held bara einhvernveginn að þegar ég prófa eitthvað nýtt þá nenni ég frekar að segja frá einhverju. Ég er komin með vinnu, er að vinna hjá JPV eða Forlaginu sem er bókaútgáfa og það er virkilega skemmtilegt. Heillar mig mjög mikið :-) Ég sakna samt skólans, útskriftarferðarinnar, að fara bara á morgnanna og hitta krakkana í skólanum og slúðra og spjalla og hlæja og djóka! Það eru svo margir sem að maður missir sambandið við núna þegar maður er hættur. Fara allir að gera sitthvora hlutina og upplifa mismunandi aðstæður og sum sambönd dofna, sérstaklega ef að maður leyfir þeim að gera það. Það er eflaust bara undir manni sjálfum komið. Var að hugsa það um daginn hvað það væri ljúft að vera ennþá í 10.bekk. Fara til Danmerkur, hafa það náðugt, lítill lærdómur (nema fyrir samræmdu prófin þegar allir voru að fara á taugum). Það var ljúft að vera í Borgarnesi og ég hefði ekki viljað alast upp á neinum öðrum stað. Fara út í saltabraut, fallin spýta, fótbolta á Wembley.. Núna er Wembley bara orðið blokkar og íbúðarstæði. Fólk er farið að búa á gamla fótboltavellinum okkar. Sjitt það eru ófáar stundirnar þaðan. Bæði góðar og slæmar  Ég hef samt trú á því að allir þessi hlutir hafi mótað mig og gert mig að þeirri manneskju sem ég er í dag, og þess vegna er ég þakklát fyrir að hafa alist upp í jafn notalegu, rólegu og nánu umhverfi eins og Borgarnesi. Þegar maður tók að eldast var maður kannski ekki nógu duglegur að hugsa þannig, en það er eins og eitthvað gerist þegar maður nær vissum aldri. Maður einhvernveginn byrjar að vera þakklátur fyrir það sem maður á og hefur. Maður hættir að taka hlutunum sem sjálfsögðum og skilur betur að maður þarf að berjast fyrir því sem maður á og vill eignast. Því sem maður vill halda í. Það var svo auðvelt þegar maður var yngri að benda bara á aðra, láta aðra axla ábyrgðina, vera sjálfelsk, vilja eignast allt og gefa ekkert. Frekjast. Trúið mér, ég var og er ennþá mjög góð í því að frekjast. Stundum skammst ég mín fyrir að gera það, kalla það ekki einu sinni frekju heldur segi að ég sé ákveðin. Fyrr má nú aldeilis fyrr vera. Ég veit ekki af hverju maður er alltaf haldinn fortíðarþráhyggju. Maður lítur alltaf til baka og sér að grasið var grænna. Ég velti því fyrir mér hvort að ég líti til baka þegar ég fer í háskóla og hugsa: Ahhh menntaskólaárin voru ljúfust. Alveg eins og ég gerði þegar ég var í menntaskóla, mér hafði verið sagt að menntaskólaárin væru best, en ég horfði til baka og hugsaði með mér að grunnskólinn hafi verið bestur. Að mig langaði svo aftur í grunnskóla. Er ekki frá því að ég sakni Menntó pínu núna. Finnst ég eldast of hratt. Mér finnst ég ekki tilbúin fyrir alvöru lífsins ennþá. Á 20 ári og ég á að ákveða hvað mig langar að gera að eilífu. Það eru óteljandi hlutir, get ekki valið, langar svo margt og mikið, langar að upplifa nýjan dag á hverjum degi, ekki alltaf það sama.  Ætli það sé samt ekki bara best að sitja og bíða, leyfa lífinu að gerast og fljóta með. Veit ekki, fæ svör við því þegar lengra líður á það. Guðrún Selma 

Ég velti því oft fyrir mér ef að ég hefði ekki farið í MK, hvort að hlutirnir væru allt öðruvísi... Ég veit allaveganna að ég myndi ekki þekkja þessar tutlur og fleiri til! :-)
»
04.01.2008 16:14:40 / gudruns
Ahhh nýtt ár gengið í garð með öllu tilheyrandi! Samt veit ég ekkert hvað ég á að gera! Útskrifuð og einmanna. Enga vinnu að hafa, eða ég nenni bara ekki að leita. Sakna Kadýjar minnar, sem er núna að spóka sig á Kanarí í góðu glensi með skemmtilegum útskriftarhópi! Ahh ég man hvað útskriftarferðin var skemmtileg! Hún var best af öllum! En allaveganna, first thing first, gleðilegt nýtt ár allir saman og takk fyrir þau gömlu. Árið 2007 var hrikalega viðburðarríkt og skemmtilegt: - Fór til London í febrúar, líka til Manchester og sá Utd spila á móti Reading. Reyndar bara 1-1 leikur, en enga síður upplifun að fara á Old Trafford!
- Fór í útskriftarferð til Tyrklands með MK-ingum. Sjæse það var ljúúúúf ferð. Verslað mikið, sólað sig meira en drykkjan var eitthvað lítil. Óvenju lítil.
- Endaði svo árið á að fara til Boston með múttu túttu. Flaug reyndar ein út en var með henni úti og eyddi jólunum þar, yndislegt.
- Eignaðist lítinn frænda, Matthías sem er guðdómlegur!
- Dimmiteraði, best í heimi.
- Varð stúdent. Ennþá meira best í heimi. Þó maður viti ekkert hvað tekur við núna.
- Vann á Sambýlinu Vesturgötu á Akranesi. Var frábært að prófa það.
- Pabbi flutti á Akranesið, æðislegt að fá hann aðeins nær sér.
- Fékk bíl. Mercedes Benz litinn. Rosalega krúttulegan.
- Jáááá man ekki eftir meiru í augnablikinu!
Árið 2007 var sem sagt æðislegt. Vona bara að 2008 standi undir væntingum. Þarf heilmikið að gerast á því til að það toppi það síðastliðna. En það er þegar ein utanlandsferð plönuð, í ágúst til Spánar með familíunni, eða hluta af henni. Vonandi kemst maður í hana. En ekki meira í bili. L8ter Manneskja gamlárs: Klárlega Eva Laufey mín, hún er ómissandi í lífinu.!!! :* haha
»
14.12.2007 20:00:50 / gudruns
Vááá hvað tíminn líður hratt. Litli Matthías er orðinn tæplega þriggja mánaða, Steinar Örn fer bráðum að byrja í skóla, Hanna og Karen stækka endalaust og fullorðnast. Maður heldur varla í við þetta lið :-) Ég ákvað nú bara að skrifa færslu til að segja ykkur að ég er að fara að útskrifast þann 20 desember. Jább þið heyrðuð rétt. Ég náði öllum prófunum og er virkilega ánægð með allar einkunnirnar mínar. Ég fékk: Stærðfræði 533 - 8, Eðlisfræði 323 - 7, Þýska 503 - 7, Líffræði 303 - 9, Sálfræði 303 - 9, Efnafræði 313 - 7. Meira man ég ekki í bili en ég er virkilega ánægð með allar einkunnirnar mínar. Voru ekki eins og ég hélt þar sem þessi önn hefur ekki verið það dugleg. Styttist óðfluga í að ég fari til útlanda, hlakka endalaust til að vera í rólegheitunum með múttu túttu. Að horfa á Grey's og hafa það kósí. Ég efast ekki um það að það verður eitthvað verlsað líka. Ég er ekki þekkt fyrir að klikka á því. Eina sem ég geri núna þessa daganna er að vinna. Geri lítið annað en það. Fékk vinnu í jólafríinu hjá Gunnu frænku minni í Forlaginu, það er virkilega fínt en jólatíminn er háanna tími í bókamálunum. Hlakka svo til að útskrifast að ég get ekki líst því almennilega. Þetta verður sjúklega gaman. Er búin að fá kjólinn og svona sem ég ætla að vera í. Finnst hann algjört æði. Þetta er svona tímalaus kjóll. Svo gladdi pabbi mitt litla hjarta um daginn í prófatímanum. Hann gaf mér lítinn sætan Mercedez Benz sem ég er virkilega ánægð með. Hann er smá spes bílinn en pabbi er enga síður músa kall...  Veit ekkert hvað ég að fara að gera eftir áramótin. Veit allaveganna að ég ætla ábyggilega að þeyta læknisfræðiprófið í júní á næsta ári, en hvað ég ætla að vinna við fram að því er algjörlega óplanað. Þarf eiginlega að fara að hella mér út í að finna vinnu. Jæja, ekki mikið meira sem ég hef að segja frá! Meira síðar þegar ég nenni og þegar ég hef frá einhverju meira að segja!!! Guðrún Selma
»
04.12.2007 16:51:28 / gudruns
Sjiiiiittt hvað ég er pirruð á að fólk hringi í mig og væli í mér yfir einhverjum hlutum og geri svo nákvæmlega sömu hluti við aðra og þeir eru að væla yfir.
Bara koma því á framfæri.
Búin í einu prófi, blogga seinna. Þegar ég er í betra skapi.
»
13.11.2007 13:48:14 / gudruns
Jæja jæja, það er ekki frásögufærandi nema nú fer að koma að
útskrift ef að prófin ganga eftir áætlun, og sú áætlun er að ná.
Markmiðin eru ekki sett hærra þessa önnina enda komin dágóður
skólaleiði í mannskapinn.
Líst líka helvíti vel á þetta nýja kerfi, þar sem maður þarf
ekki að ná 4,5 í lokaprófi ef að skólaeinkunn er góð, maður þarf
bara að ná 4,5 út úr bæði lokaprófseinkunn og vetrareinkunn
samanlagðri. Ágætt það fólkið gott.
Ég er ekki sátt að fá aldrei nein komment frá þeim sem kíkja inn
á síðuna, kannski eru ekki margir, en væri alveg gaman að fá kveðju
af og til svona í lífinu!!! Ekki satt?
Dimmitering 23.nóv, fer að detta í það og svo er aftur
dimmitering 30. nóv!! Heppin ég?
Í augnablikinu hef ég samt sem áður ekki mikla lyst á áfengi
þessa daganna, enda er fínt að taka sér pásur svona af og til í
lífinu!
Er búin að vera að velta því fyrir mér lengi lengi hvað ég mun
taka mér fyrir hendur eftir áramót en ég hef ekki enn komist að
niðurstöðu, vitur maður sagði mér þó að það myndi koma að því, ég
þyrfti ekki að hafa neeeeinar áhyggjur! en þær eru samt til
staðar þrátt fyrir það.
Litli ormur er kominn með nafn, Matthías og þykir mér það hæfa
honum afar vel, finnst hann ofsa Matthíaslegur. Veislan og athöfnin
var alveg æðisleg og kræsingarnar voru ekki af verri endanum!
Ég er ekki svo dugleg að blogga, set líka allar myndirnar mínar
inn á myspace.com/gudrunselma (það er ekki skylda að vera vinur
minn til að skoða myndirnar, lúxus).
Pæli í fullt af hlutum þessa dagana, og sú pæling sem er
ofarlegast í huga núna er: Þegar maður á hlutina langar manni ekki
í þá en ef maður á þá ekki þá myndi maður drepa fyrir þá!! Af
hverju er þetta svona?
Já ef ég vissi svarið við öllum mínum pælingum þá væri lífið
alls ekki skemmtilegt, jú sjáið nefnilega til, lífið er til að
leita svara við þeim hlutum sem þú vilt fá svör við. Maður getur
fengið svör við flestu, þó ekki öllu enda verða spurningarnar að
vera raunhæfar sem maður spyr sig. En ég hef komist að þessu með
áralöngu væli og nöldri um það að vita ekkert um hvað lífið snýst.
Hananú, þar fáiði svarið!
En nenni ekki meiru í bili, reyni að skrifa oftar inn, segja
fréttir svona með styttra millibili.
Piece out!

Ég er að fara með þessari tutlu til Boston í desember, verð
sem sagt úti um jólin stressandi!!
GuðrúnSelmaSteinarsdóttir :*
»
12.10.2007 21:04:15 / gudruns
Blelli... Langt síðan maður hefur sest niður við tölvuna og bloggað færslu. Elskuleg systir mín átti afmæli í gær. Hef ekki komist til hennar, en til hamingju með daginn elsku Bylgja mín :* Skólinn gengur sinn vanagang. Brjálað að gera í öllum fögum, en ég gaf mér þó tíma til að skella mér á Októberfest með Kadý og Eydísi minni, við skemmtum okkur konunglega! Ooog svo var það tyllidagaballið síðasta þriðjudag. Það voru sem sagt tyllidagar í skólanum á mánudag og þriðjudag sem enduðu með balli, sem var já heldur skrautlegt. Þemað var Hollywood og ég fór sem Beyonce Knowles og vakti mikla kátínu meðal annarra gesta. Vildu allir snerta á mér hárið... meira en helmingurinn af myndunum frá því balli eru af fólki sem ég þekki naumast bara ekki neitt. Skólinn á allan manns tíma þessa dagana og ég er ekki frá því að ég hafi aldrei á ævinni verið að gera jafn margar ritgerðir í einu. Svo er maður að vinna og svoleiðis skemmtilegheit. Ég held mér þó gangandi með skemmtilegum vinskap í skólanum og með þeirri hugsun að þetta fer að taka enda! Einnig er það virkilega spennandi og nýjungagjarnt að ég er að fara til Boston um jólin flýg út á Þollák og kem heim 31, beint á áramótadjammið búin að versla og versla og versla! Einhver með óskalista? Annars er lítið að frétta af mér, lífið gengur bara sinn vanagang og ég fylgi straumnum. Hef það þó ansi gott og líður vel enda er það fyrir mestu. Er loksins búin að átta mig á því hvað ég vil gera við líf mitt og er byrjuð að rækta gömul vinasambönd upp á nýtt, sem mér þykir einkum yndislegt. Fátt er þó yndislegra en að eignast nýja og góða félaga. Eeeen ég kveð núna, nýjar myndir koma reglulega inn á myspace.com/gudrunselma og það geta allir skoðað myndirnar mínar þar, geri ekki kröfur um að þið þurfið að vera myspace vinir mínir... Gudda is out
»
25.09.2007 23:02:52 / gudruns
Ætla bara að óska Elínu Önnu og Sólmundi, ásamt öllum ömmum,
öfum, langömmum, langömmum, frænkum og frændum til hamingju með
litla angann :* sem er btw guuðdómlegur :*
Úff, gat ekki tekið af honum augun.. nú á fjögur
gullfalleg lítil börn 

Litla fallega fjölskyldan

algjör engill.. heyrist ekki í honum, hann er svo búinn á
því:*
En ef þið viljið sjá fleiri myndir eru þær inn á
myspace.com/gudrunselma
Líka einhverjar frá partý sem ég hélt síðasta laugardag í nýju
íbúðinni hans pabba gamla 
Kveðjur
Guðrún Selma:*
»
18.09.2007 16:56:57 / gudruns
Góðan dag... Gaarrg.. hafiði lent í því að hlutirnir sem ykkur langaði ykkur, henti ykkur bara ekki lengur?? Og þá langar manni að gera eitthvað annað, sem passar bara ekki akkúrat þessa stundina?? Jább, talandi um óheppni. Hún fyrirfinnst svo sannarlega í sjálfri mér. En einn daginn á ég eftir að sætta mig við hana þegar lífið verður "auðveldara". Lífið gengur bara sinn vanagang eins og alltaf, ég læt mig ekkert hafa of mikið að gera, hugsa um að njóta lífsins og gera eitthvað krassandi. Það var reunion síðastliðinn laugardag. Jáff, heldur betur skemmtilegheit þar á ferðinni. Vonandi verður þessi leikur samt seint endurtekinn, fer ekkert meira út í það hér!  Hlakka svo deadly mikið að klára skólann um jólin, dimmitera og skemmta mér í góðra vina hópi. Ólýsanlegt  Er samt ekki mikið búin að spá í því hvað mig langar að gera, ef til vill fer maður bara beint í háskólann að læra eitthvað fróðlegt og skemmtilegt, hvað svo sem það er nú! Það er gaman að endurupprifja gömul kynni, þarf bara að læra að halda kjafti um hlutina!! hehe...  Lífið hefur tekið breytta stefnu, stefnu sem ég bjóst ekki við en ég er spennt að sjá hvar þessi vegur endar og nýr hefst!! Bið að heilsa þangað til næst... GuðrúnSelma
»
13.09.2007 16:37:56 / gudruns
Komiði heil og sæl  Jább... eins og ferðin var ljómandi yndisleg þá er nú alltaf gott að vera komin heim. Ég gæti allaveganna ekki verið ánægðari! Bæði með ferðina og heimkomuna. En þá er þessi áfangi lífsins yfirstaðinn, útskriftarferð úr Menntaskóla, lokið. Ferðin var sem sagt indæl í alla staði, ætla að stikla á smáu hvað var gert: - Jeppasafarí
- Cruise
- Tyrkneskt kvöld
- Tyrkneskt bað (btw algjör lúxus og kostaði 2500 kjéll)
- Basarnir voru nokk oft heimsóttir
- Fly fish
- Banana boat --> ég hafði sem sagt aldrei gert neitt svona á ævinni og grenjaði í banana bátunum, fór svo eftir það í ringo og á fly fish og þá fyrst varð maður hræddur)
- Ringo (SWEET)
- Kúrt upp í rúmi að lesa
- Hitabylgja (hitinn fór í 56 stig r some)
- Kiþi vinur okkar Söndru, með samskiptaörðugleikana!
Æjh og margt meira!! Þetta er svona flest allt bara yndislegt varðandi þessa ferð!! :* Takk stelpur mínar fyrir að gera hana eins og hún var!! En núna er ég sem sagt komin heim, byrjuð í skólanum og komin í faðminn á Ölla mínum :* úff hvað var gott að sjá hann á flugvellinum, hann var samt ekki með blöðru og rósir í þetta skiptið heldur prince polo og appelsín!! Sem var nú ekki síðra skal ég ykkur segja Gott að fá appelsín eftir 2 vikur!!! Svo hefur maður lítið gert síðan maður kom heim! Mest bara að vera í skólanum, læra, vinna, upp á skaga... Átti að vísu afmæli 30.ágúst og hélt veislu fyrir Busaballið upp á Skaga. Bauð þar nokkrum velvöldnum vinkonum og áttu good times áður en á ballið var haldið. En jæja jæja, ekki meira í bili... L8ter Guðrún Selma 
Þarna er töffarinn í öllu sínu valdi :*  Ooog við saman á hestbaki 2006, Ölli hvernig væri að endurtaka þetta?? ;p Þú varst yndislegur á baki!! :*
»
09.08.2007 14:10:34 / gudruns
Halló allir saman...
Nú er lífið ljúft. Ljúfara gerist það ekki nema þegar
Ölli er góður við mig (sem er alltaf) :*
Jááább, það er nefnilega mál með vexti, að á morgun er ég
að fljúga út til Tyrklands í mína langþráðu útskriftarferð... og
ég mun klárlega þurfa að hafa sólgleraugun á mér í þeirri ferð þar
sem meðalhitastig í Tyrklandi er 33° C það sem af er
ágústmánuði.
Ég vona að ég verði brún og sælleg þegar ég heim,
verður yndislegt að komast aðeins út í góða veðrið, þó svo að það
sé búið að vera yndislegt veður á fróninu góða í allt sumar

Vildi bara láta aðeins í mér heyra áður en ég færi
út!
Hafið það gott á Íslandinu, og sjáumst heil þegar
ég kem heim!!! :**
Love
Guðrún Selma
»
22.07.2007 22:06:43 / gudruns
Well, well, well...
Sat í dag og
mér var hugsað til þess hvað mig langaði að gera þegar ég myndi
útskrifast... any ideas??
Er
allaveganna harðákveðin í því að festa mig ekki strax á skólabekk
aftur. Taka smá pásu og gera eitthvað skemmtilegt. Live a little...

Lífið er of
stutt til að sitja endalaust á skólabekk, langar örlítið í skóla
lífsins...
Horfði á
Sönn íslensk Sakamál um daginn, þegar þátturinn var um Steingrím
Njálsson. Mér svelgdist á. Vibbi.
Allir
dómarnir sem hann hafði játað á sig, þeim neitaði hann seinna meir.
Alveg ruglaður í hausnum. Þetta er sorglegt.
Hann missti
bílprófið ábyggilega svona 30 sinnum en fékk alltaf bara sekt og
eitthvað rugl. Maðurinn sat aldrei almennilega inni. Kannski 1 eða
2 ár og var svo sleppt og gerði saman horbjóðinn aftur og
aftur.
Dómskerfið á
Íslandi er rugl. Segi ekki annað. Mér verður óglatt meirað segja á
að skrifa þetta, þannig ég segi þetta gott.
Ég verð
alltaf ánægðari og ánægðari með það sem ég á. Þó ég hafi lært að
lífið sé ekki bara dans á rósum þá er ég himinlifandi með það!!

Mig langar
svo svakalega að fara að gera eitthvað skemmtilegt með vinkonum
mínum. Finnst við ekki hafa verið nógu duglegar í góða veðrinu!!
Nýta þetta í e-ð hressandi og skapandi.
Hafiði tekið
eftir því hvað það er langt síðan það var ball á Breiðinni?? Mig
langar á ball, eða gott heimapartý. Það er svo gaman að vera
saman.
Styttist í ungann hjá Elínu
og Sóla, ég er spennt.. og hann er ekki af verri endanum
þessi Sólmundur, fór bara niður á hnéin 7. júlí og bað hana
systir mína um að giftast sér. Hann bað mig aldrei um leyfi,
en ég er viss um að ég hefði sagt já. Þau eru
indæl.

Var ekki
nógu dugleg að liggja hinsvegar á pallinum hjá Bylgju systir í góða
veðrinu, en þar fór hitinn alveg upp í 35° eða svo. Ekki amalegt
það.
Áttaði mig á
því um daginn hversu rík ég er, á fullt af frænkum og frændum,
systkinum, góða fjölskyldu, kæró og góða vini (það er nú
eitthvað minna um peninginn samt sem áður) 
En þetta er orðið frekar
langt hjá mér.
Er að setja
myndir frá frábærri Londonferð hjá mér og Ölla mínum í
febrúar, þetta er bara svo helvíti lengi að uploadast...
Enda þetta á
nokkrum gömlum og góðum, sumar hallærislegri en aðrar
:*




Love
GuðrúnSelma
»
10.07.2007 04:23:30 / gudruns
Hvað þykir þér??
Keidý görl?? Er komin rush hour??
bwahahahahaha...
þvílík snilldar helgi
að baki...
Vorum heima hjá Stefáni
nokkrum Halldóri sem á föður að nafni Jón og Rósu sósu nokkrar
stelpur að spjalla og dansa og hrista okkur. Ég mætti með razzið,
Eva bjútí með jarðaberin og úr því varð þessi stórgóði mojhito sem
kætti marga þetta kvöldið...
Snilldar diskurinn hennar
Kadýjar var klárlega málið, maður gat hrist sig endalaust við þessi
þvílíku snilldarlög. Agla nýkomin heim frá útlöndum með tryllitækið
og einnig hún Eydís mín :*
Gaman að vera
saman.
En á föstudeginum hitti ég
bara hana Evu Laufey niðrí bæ, horfði með henni á tískusýningu og
tjúttaði smávegis með henni og Karitas. Var farin frekar snemma
heim en var vakin á laugardagsmorgninum við heldur slæmar fréttir
og brunaði upp á sjúkrahús þar sem ástarpúngurinn minn lá á slysó!!
Hann er frekar seinheppinn.
Laugardagurinn var svo hinn
sæmilegasti, sofið, farið á markað og í tívolí, gert sig kláran, og
djammað meira. Ölli minn komst ekki á ballið sökum seinheppni, en
ég lét mig klárlega ekki vanta, þó að ég hafi farið snemma
heim.
Ég nefnilega á það til að
týna öllum og þá nenni ég ekki meiru. Svoleiðis er nú bara lífið og
ég sætti mig alveg hreint ágætlega við það.
Gæti verið að ég væri að
skrifa eitthvað crap þar sem ég sit á næturvakt núna á sambýlinu,
er búin að þvo þvott, hengja upp, skúra og þrífa þannig að ég ætti
að vera í æfingu fyrir framtíðina. Það er bara með ólíkindum hvað
maður nennir aldrei að þrífa sitt eigið herbergi eða sitt eigið
drasl, ég veit fátt jafn leiðinlegt og það.
En mér finnst einkum frábært
hvað það er gaman að kynnast nýju fólki og komast að því hvað fólk
sem maður hélt að væri ólíkt sér, er í raun og veru með svipaðan
hugsunarhátt og skoðanir og maður sjálfur, já lömbin mín, svona
getur heimurinn verið skrítinn.
Æjh ég er þreytt, ætla að
fara að dedúa við eitthvað svo að ég haldi sjálfri mér á lífi!!
:*
Líf og fjör var einkennandi
fyrir helgina, segi lítið annað... eeenn og aftur er það keidí görl
sem á heiður skilinn fyrir góðan félagsskap og
skemmtun...
ooog meðan ég man Kadý, hvar
er fokking bikarinn sem ég keypti handa þér fyrir þjóðhátíð 2005?
Já ég spyr mig sjálfa að því, verða að fara að tjékka á
þessu!!
Love
Gudda
frænka outta da house 
»
25.06.2007 23:23:32 / gudruns
Mér hefði aldrei dottið í
hug þegar ég skráði mig í sumarskóla hversu erfitt þetta ætti
eftir að vera. Þá daga sem maður er í fríi í vinnunni langar
manni að gera lítið annað en að sofa og slappa af í góðra
vina hópi og vera í rólegheitunum.
Ég var allavega á ættarmóti um
helgina á Skagaströnd og það var alveg hreint út sagt æðislegt. Það
var fjölskyldan hans Ölla sem var að hittast og við vorum í
heimahúsi í rólegheitunum. Dýrindismatur, svefn, áfengi og fleira
einkenndi þessa æðislegu ferð!! 
Maður fór allaveganna kátur
heim, en þreyttur sem gerði það að verkum að ég vaknaði almennilega
klukkan 15:00 í morgun, þegar ég átti að mæta í vinnu 16:00, þannig
ekki var mikill tíminn þá fyrir lærdóm!

Hérna er maður dökkhærður og í
góðu yfirlæti á Þingvöllum.
Ég get ekki annað en hlakkað til
að fara í útileigu í sumar. Ef ég kemst þá í einhverja. Vona það
samt sem áður, sú sem ég fór í í fyrra var hreint út sagt indæl!!
Ég mundi að vísu ekki tjalda 10 manna tjaldi aftur þetta árið, en
það var samt lífsreynsla.

Ölli hjá Geysi, en við fórum að
skoða ófáa hlutina í þessari ferð. Sem var hreint út sagt
ómótstæðileg.

Það var geðsjúkt til dæmis í
rafting...!!
En það koma ár eftir þetta ár,
og ef maður kemst ekki í útileigu þetta árið þá sleppir maður því
barasta!!
Verð að nefna það að hún Dagný
Jónsdóttir er að koma heim þann 29. júní og verður eflaust efnt til
stórveislu og pottapartýs í tilefni heimkomu hennar. Pæla aðeins að
hún er búin að vera úti í ár og þetta er búið að líða vangefið
hratt!!!!
En meiru nenni ég ekki núna
þannig að ég bið að heilsa og vona að ég fái aðeins fleiri komment
núna heldur en í síðustu færslu!! :*

Kannski ætti maður bara að verða
dökkhærður aftur!!! hehe...
Hafið það gott þangað til næst
sæta fólk:**
»
05.06.2007 22:46:10 / gudruns
Ohh lífið er ljúft! Það er ekki að spurja að því.. Gengur allt
sinn vanagang og vinnan er æðisleg, svo gefandi og frábær.
Ég er byrjuð að telja niður dagana til Marmaris, Svanhvít og
Klara: hvernig hafiði það þarna úti í sólinni?? *öfund*
Mig er farið að langa að kíkja á fóbóæfingu með ÍA. Þori bara
ekki alveg. Vildi óska að Ölli hefði ekki slitið þessi bévítans
krossbönd, þá gætum við af og til farið að sparka í bolta og leika
okkur.
Ég fór á Ungfrú Ísland. Mikið á ég sætar vinkonur, það er ekki
eðlilegt! Girls, rock on. Og að mínu mati voru þið LANGTUM
fallegastar á sviðinu, og með langbesta stuðninginn
creditcredit!
En svo verður nú ekki minna stuð um helgina, ég og stelpurnar
ætlum að halda kokteilparty og þema verður auðvitað með í spilunum
og það verður á föstudeginum. Ég ætla að reyna að taka myndir!
Auðvitað.
Svo ætlum ég, Eydís og Rósa að fara í bláa lónið og út að borða
á laugardaginn!! ég pantaði gott borð fyrir okkur á Ítalíu. Ég
hlakka til.
En brosið framan í heiminn, þá mun heimurinn brosa framan í
ykkur, og ósjálfrátt verður lífið ljúft á allan þann hátt sem þið
viljið!
Ég er allaveganna glöð, og þær ákvarðanir sem ég hef tekið eru
svo sannarlega að borga sig og það hefur kennt mér að það er alltaf
best að hlusta á sjálfan sig og sitt hjarta :*
Myndir frá London og fleiru eru væntanlegar, þegar ég hef lært
almennilega á eplið 
Gudda Budda kveður --> glöð enda þýðir ekkert annað.
»
19.05.2007 18:53:36 / gudruns
Sumarið er klárlega tíminn... lífið leikur við mann þessa
dagana, yndislegt veður, maður er endalaust í góðra vina hópi og
tíminn líður eins og fugl!!
Ahhh... fékk út úr prófunum fyrir tveimur dögum. Gekk allt vel,
náði allaveganna öllu þannig að get ekki kvartað þar, þar sem maður
missti slatta úr skóla! Er drullusátt allaveganna!
Elín systir stækkar og stækkar og litli strákurinn (að ég held)
dafnar vel og er ábyggilega sætur, endilega ekki langt að sækja
það tek það samt fram að það er ekki komið kyn á barnið, eða það
veit það enginn fyrir víst :*
Jább, lífið leikur
við mann.
Lítið búið að vera að gera samt sem áður, er ekki byrjuð að
vinna, en það er smávegis búið að vera að gera í tónleikum upp á
síðkasti, en ég sit einmitt núna í laugardalshöllinni að vinna á
Goran Bregovich, síðasta þriðjudag og miðvikudag var Josh Groban,
hell flottur náungi!
Svo er það eitthvað kósí framundan bara... er mikið búin að vera
að leika við Írenu Dögg og Ölla minn.... Írena alltaf jafn
mikið krútt og segir manni sögur af Latabæ... verður fallegt þegar
maður eignast eitt kríli sjálfur! þau eru endalaus krútt... 
Veit eiginlega ekki hvað ég á að segja meira nema bara
l8ter..
Skrifa meira þegar ég hef betri tíma :**
Yours truly madly deeply
Guðrún Selma
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
|